Ákvað að taka aðeins saman þessa uppsetningu ef einhver getur nýtt sér.
Athugið að þetta nær aðeins yfir MacOS og Linux því miður en sama aðferð er notuð á Windows en ég hef ekki hugmynd um hvar hlutirnir þar eru staðsettir.
Orðið forrit í eftirfarandi samhengi á við kóða sem hefur verið þýddur(compile-aður) í keyranlega skrá. Orðið skel verður notað sem samheiti yfir allar helstu tegundir skelja sem eru í notkun (sh, bash, zsh, o.s.f.v.)
Keyranleg forrit í skelinni geta verið staðsett í hinum og þessum möppum. Þegar heiti á keyranlegri skrá er sleginn inn í skelinni þá þarf skráin að vera til staðar í möppunni sem heitið er slegið inn. Skelin reynir ekki að leita að skrá með þessu heiti á allri vélinni.
En það væri frekar glatað að þurfa að vita nákvæmlega hvar öll forrit væru staðsett og þurfa svo að auki að cd
-a sig inn í möppuna þar sem forritið væri til að keyra það.