Skip to content

Instantly share code, notes, and snippets.

View Loknar's full-sized avatar

Sveinn Flóki Guðmundsson Loknar

  • Iceland
View GitHub Profile

Þrjú á pałli - Gilsbakkaþula

::Kátt er á jólunum::
::koma þau senn,::
::þá munu upp líta Gilsbakkamenn::

::úti sjái þeir stúlku::

Klingja nú brátt klukkurnar dátt

Klingja nú brátt klukkurnar dátt
kátt er um jól, um dal og hól.
Börn ung og smá, brosandi þá,
bíða og þrá, dýrðin' að sjá.

Hratt líður stund, fagnaðarfund

Upprifjun endurtalningarinnar í norðvestur

opnumynd

Sveinn Flóki Guðmundsson rifjar upp norðvesturmálið sem blossaði upp í kjölfar þingkosninganna 2021.


Norðvestur-málið vakti athygli mína sérstaklega þar sem það kom upp í kjördæminu mínu. Þó innsýn mín í þetta mál sé að megninu til einungis í formi lestrar, hlustunar og áhorfs á fréttir og annað efni sem birt var um þetta mál þá skal tekið fram að mikil vinna fór fram af minni hálfu að fylgjast með þróun málsins. Ég átti ekki þátt að þessu máli annan en þann að kæra kosningarnar til kjörbréfanefndar. Ég eyddi megninu af mínum frítíma frá lokum september til loka nóvember í að fylgjast með því sem gerðist. Ég horfði á og fletti upp nánast hverri einustu frétt, skimaði yfir flest öll þau gögn sem undirbúningskjörbréfanefnd birti um þetta mál og oft þegar ég varð uppiskroppa með nýtt efni til að kyn

Nautn Þagnarinnar

Orð ljót róta,
þögn þau brjóta,
ryðjast hávær inn,
í litla heiminn minn.

Sársauka valda,
stungu mér gjalda.
Skilurðu orðin mín,

Dælan in memorian

Dælan kom fram á sjónarsviðið í júní 2016, þegar N1 stofnaði nýtt vörumerki fyrir þrjár af sjálfsafgreiðslu eldsneytisstöðvum sínum á höfuðborgarsvæðinu. Þessar stöðvar seldu eldsneyti sem keppti við verðlagningu þáverandi Orkan X stöðva. Orkan X var undirmerki Orkunnar sem er vörumerki í eigu Skeljungs. Orkan X stöðvarnar voru afsláttarlausar og buðu oftast lægsta eldsneytisverðið á markaðnum jafnvel þó tekið væri tillit til afslátta annarra stöðva.

Costco opnaði bensínstöð í Kauptúni þann 17. maí 2017 samhliða opnun verslunar sinnar. Innkoma Costco hafði djúp áhrif á eldsneytissölu á höfuðborgarsvæðinu og víðar, en Costco hefur frá opnun boðið lægsta bensín- og dísilverðið á landinu. Costco fékk samkeppnislaust að sjúga upp eldsneytissölu á höfuðborgarsvæðinu í krafti þónokkuð lægra eldsneytisverðs allt þar til [Atlantsolía ákvað 1. maí 2018 að

Stjörnustrengir

Einhverstaðar í órafjarlægð á jaðri myrkurs heimsins, í rúminu milli glitrandi stjarnanna, var lítil pláneta.

Á plánetu þessari bjó lítil stúlka einsömul. Stúlkan vissi ekki uppruna sinn. Sama hve mikið hún reyndi þá gat hún ekki munað það. Hún hugsaði og hugsaði en ekkert nýtt kom upp í hugann. Það eina sem hún gat munað var nafnið hennar, Karína, og ..

.. og hún hafði kunnáttu og þekkingu til að komast af.

Þrátt fyrir smæð plánetunnar var hún brimfull af fjölbreyttu lífi, jafnt flóru sem fánu, en Karína var ein.

Jólajólajól

https://soundcloud.com/wolf_master/jolajolajol/s-d2PNV

Þegar börnin skó í glugga setja skaltu vit'að nálgast jólajólajól
Er húsbóndinn angar eins og skata máttu vit'að nálgast jólajólajól
Þegar rökkrið ríkir og vor dagur er hvað stystur nálgast jólajólajól
Þegar frostið níðir þig og nístir skaltu vit'að nálgast jólajólajól, jólajólajól

Ormur

Stutt athugasemd frá höfundi: Þessi saga er ekki hugsuð fyrir unga eða viðkvæma lesendur. Lesendum sem vilja forðast kveikjuvanlíðan er ráðlagt að sleppa því að lesa Orm.

Kafli 1 - Myndbreyting

Myndbreyting 1.1